09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2828 í B-deild Alþingistíðinda. (2775)

230. mál, almannatryggingar

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég vil mótmæla því sérstaklega að það liggi ekki fyrir upplýsingar um kostnað í svo stóru máli sem þessu. Hér er verið að tala um tugi millj. og það er upplýst hér að menn hafi ekki hugmynd um hvað þetta kostar. Á sama tíma eru menn að tala um mikla erfiðleika í þjóðfélaginu. Ég tel að það hafi verið upplýst hér að málið sé illa undirbúið og það hafi ekki komið fram hvaða útgjöld hér er um að tefla og segi því nei.