09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (2777)
230. mál, almannatryggingar
Jóhann Einvarðsson:
Herra forseti. Það kom mér mjög á óvart þegar hæstv. ráðh. lýsti því yfir hér við umr. fyrir nokkrum dögum að ríkisstj. hefði tekið ákvörðun um að greiða 20% af tannlæknakostnaði. Því taldi ég rétt, þegar þetta frv. kom til afgreiðslu í heilbr.og trn., að skapa hæstv. ráðh. lagagrundvöll til þess að standa við sína yfirlýsingu, og því segi ég já.