09.03.1983
Neðri deild: 58. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2837 í B-deild Alþingistíðinda. (2793)

4. mál, lokunartími sölubúða

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég sé ástæðu til að mótmæla því sem kom fram hjá virðulegum 4. þm. Reykv. Engum þvingunum hefur verið beitt af sveitarstjórnum á þessu svæði, í Reykjavík síst af öllu. Þar hafa átt sér stað frjálsir samningar milli atvinnurekenda og Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Því mótmæli ég þeim ummælum sem hann lét hér falla og segi nei.