10.03.1983
Sameinað þing: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2847 í B-deild Alþingistíðinda. (2812)

Um þingsköp

Forseti (Jón Helgason):

Það er mikill misskilningur sem fram kemur í þessu máli, á sumum sviðum a.m.k. Hæstv. forsrh. var á fundum með forsetum þingsins í gærdag og fyrir nokkru afhenti hann lista með málum sem hann óskaði eftir að næðu hér fram að ganga. Þeir listar voru afhentir formönnum þingflokka. Ég mun ekki fjalla frekar um þetta.