11.03.1983
Efri deild: 67. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2913 í B-deild Alþingistíðinda. (2950)

Um þingsköp

Forseti (Helgi Seljan):

Út af fram komnum aths., sem hér hafa verið uppi, vildi ég mjög gjarnan óska þess að menn styttu mál sitt um þingsköp varðandi þessa till. og færu sem minnst út í efnislegar umr. um hana, því að hún kemur til umr. á eftir, og að sjálfsögðu að ræðumenn fái einnig gott hljóð til að flytja sitt mál.