11.03.1983
Neðri deild: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2952 í B-deild Alþingistíðinda. (3001)
163. mál, verðlag
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Það kemur nú úr hörðustu átt þegar síðasti ræðumaður, hv. þm. Vilmundur Gylfason, fer að vanda um við menn, tala um að borgaryfirvöld hafi hegðað sér á umdeilanlegan hátt. Ég vísa því heim til föðurhúsanna. Borgarstjórn hefur alls ekki hegðað sér ósæmilega í þessu máli frekar en öðru. Bæði alþm. og sveitarstjórnarmenn um land allt eru að vinna að, eftir því sem þeir segja sjálfir, auknu sjálfstæði sveitarfélaganna. En hér eru greidd atkv. um afskaplega sjálfstætt mál. Samþykki hv. Alþingi þessa brtt. breytir það ekki öðru en því, að sveitarstjórnin, höfuðborgin, fær sjálfsákvörðunarrétt í tveimur málum, þ.e. gjaldskrá Strætisvagna Reykjavíkur og sundstaðanna. Strætisvagnar Akureyrar og sundstaðirnir á Akureyri tilkynna sínar gjaldskrár án þess að verðlagsyfirvöld geri nokkra aths. við það. Ég segi já.