11.03.1983
Neðri deild: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2952 í B-deild Alþingistíðinda. (3002)

163. mál, verðlag

Birgir Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Verðlagsyfirvöld hafa hagað sér með mjög ósæmilegum hætti í skiptum sínum við Reykjavíkurborg. Verðlagsyfirvöld hafa neitað Reykjavíkurborg um gjaldtöku fyrir þjónustu sem verðlagsyfirvöld láta afskiptalausa annars staðar eða jafnvel samþykkja. Það er því kominn tími til að losa um þessi höft og breyta hér til. Ég segi já.