14.03.1983
Efri deild: 68. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3081 í B-deild Alþingistíðinda. (3052)
216. mál, Landsvirkjun
Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Iðnn. Ed. hefur tekið frv. þetta til meðferðar og mælir með því að það verði samþ. óbreytt. Ég þarf ekki að lýsa efni þessa frv. Það eru ekki nema örfáir dagar síðan því voru gerð ítarleg skil hér við 1. umr. Hér er um merkilegt frv. og mikilvægt að ræða og sem byggir m.a. á samkomulagi milli eignaraðila Landsvirkjunar, eins og þeir verða samkv. þessu frv., þ.e. Laxárvirkjunar auk ríkis og Reykjavíkurborgar sem verið hafa.
Ég vil sérstaklega láta þess getið, vegna þess að mér er málið nokkuð skylt, að þetta frv. rúmast að öllu leyti innan þeirra. marka sem sett eru í frv. að nýjum orkulögum þar sem gert er ráð fyrir rammalögum um orkumál landsins. En þetta frv. er flutt af mér og öðrum sjálfstæðismanni í þessari deild.