14.03.1983
Efri deild: 68. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3082 í B-deild Alþingistíðinda. (3059)

225. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Þetta frv. felur í sér að bæta einum starfshópi inn í Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna. Nefndin hefur fjallað um frv. og finnst eðlilegt að þessi breyting sé gerð. Hún mælir með því að það verði samþ.