14.03.1983
Efri deild: 68. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3082 í B-deild Alþingistíðinda. (3062)
158. mál, bann við ofbeldiskvikmyndum
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég þakka hv. menntmn. Ed. fyrir að hafa tekið tillit til efnisatriða úr frv. sem ég flutti hér um sama efni og fyrir að flytja þau efnisatriði sem brtt. við frv. til l. um bann gegn ofbeldiskvikmyndum. Ég held að fullyrða megi að bæði þessi atriði séu til bóta.