14.03.1983
Sameinað þing: 65. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3142 í B-deild Alþingistíðinda. (3163)

36. mál, laxveiðar Færeyinga í sjó

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Ég vil einungis þakka hv: utanrmn. fyrir afgreiðslu þessa máls og raunar líka utanrrh., sem hefur tekið þátt í fundum þar sem mál þetta var til lykta leitt, og vona ég að þingheimur geti sameinast um að afgreiða þessa till. samþykkja hana eins og utanrmn. var sammála um.