14.03.1983
Sameinað þing: 65. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3143 í B-deild Alþingistíðinda. (3164)

36. mál, laxveiðar Færeyinga í sjó

Utanrrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Um leið og fregnir birtust um veiðar Færeyinga skammt fyrir utan línu skrifaði ég lögmanni Færeyinga bréf, sem ég held að birt hafi verið í blöðum, og ég þarf ekki að endursegja efni þess hér. M.a. fór ég fram á að viðræður væru teknar upp. Lögmaðurinn hefur þegar svarað þessu bréfi jákvætt og er reiðubúinn til viðræðna. Ég vildi aðeins láta þetta koma fram í þessari umr.