14.03.1983
Neðri deild: 67. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3165 í B-deild Alþingistíðinda. (3191)

Starfslok neðri deildar

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Þetta er síðasti fundur í hv. Nd. á þessu þingi. Ég vil þakka hv. þdm. innilega fyrir samvinnuna og þolinmæði sem mér hefur verið sýnd, sem ég því miður stundum hefi átt í erfiðleikum með að endurgjalda í sama máta.

Ég þakka varaforsetum fyrir mjög góða samvinnu og hjálpsemi og skrifurum vorum skilgóðum þakka ég. Skrifstofustjóra Alþingis færi ég þakkir, og ég veit að hv. dm. taka undir það, og starfsfólki öllu í Alþingi.

Ég bið fjölskyldum hv. þm. heilla og blessunar og óska þeim, sem eiga um langan veg heim að sækja, góðrar heimferðar og heimkomu.