11.11.1982
Sameinað þing: 16. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (331)
Um þingsköp
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð til þess að leiðrétta það sem ég geri ráð fyrir að hafi verið mismæli hjá hv. 11. þm. Reykv. Hann sagði að forseti Nd. hefði í gær fallist á tillögu hæstv. viðskrh. um nefndarval vegna frv. til l. um neyðarbirgðir olíu. Það er auðvitað mismæli. Forseti tekur að jafnaði við till, flm. og ber þær undir deild eins og hæstv. forseti Sþ. Það má að vísu segja að manni hafi virst í fljótu bragði sem það frv. hefði átt heima í fjh.- og viðskn. Þó kunni það að orka tvímælis, ef menn vildu álíta að hér væru málefni orkuefnisleg. Í ljós kom að hv. Ed. hafði vísað þessu máli til iðnn. í meðferð s.l. vor við rannsókn málsins kom það að vísu á óvart einnig. En þetta getur ekki skapað neitt fordæmi. Nokkuð hefur borið á því að menn hafi að geðþótta sínum gert tillögur um nefndir eftir því hvernig þær hafa verið skipaðar; sjálfum sér eða öðrum sem þeim hefur hugnast þá og þá að fá til liðs við sig, gæti maður ætlað.
En aðeins að lokum, hæstv. forseti: Ég er þeirrar skoðunar að till. hv. flm., hv. 4. þm. Reykv., eigi að koma til atkv. fyrst, þar sem till. hæstv. utanrrh. er ekki brtt., heldur báðar sjálfstæðar tillögur.