23.11.1982
Sameinað þing: 20. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (517)

88. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Hér er hvorki staður né stund til að deila við gamlan samherja. Í fjölmörgum málum höfum við Vilmundur Gylfason staðið saman og barist saman. Það er ekkert launungarmál að ég sé eftir Vilmundi úr Alþfl. og svo er um fleiri flokksbræður mína. En ákvörðun hans fékkst ekki breytt. Við gamlir samherjar hans í Alþfl. viljum kveðja hann án hnjóðsyrða og óskum honum góðs. Merkið stendur þótt maðurinn falli. Vilmundur hefur nú vikið sér undan merki Alþfl. Það er hlutverk okkar hinna að halda því á lofti. Það munum við líka gera.

Samkv. upplýsingum Þjóðhagsstofnunar er hraði verðbólgunnar nú sá hinn sami og var þegar ríkisstj. tók við völdum. Störf hennar, niðurtalning Framsfl., hafa nákvæmlega engum árangri skilað. Stöndum við þá í sömu sporum og fyrir tæpum þremur árum? Því miður ekki. Kaupmáttur umsaminna launa hefur lækkað um 5% í valdatíð stjórnarinnar. Gengi krónunnar hefur rýrnað um 2/3 á sama tíma. Nýja krónan er nú 48 aura virði. 52 aurar af upphaflegu verðgildi hennar hafa horfið. Lausafjárstaða banka hefur versnað þrítugfalt í tíð ríkisstj. 10% ríkistekna fara nú í að halda uppi fölsku verði á landbúnaðarafurðum og útgjöld þjóðarinnar þess vegna nema sömu fjárhæð og varið er til allra heilbrigðismála í landinu. Erlendar skuldir hafa í tíð ríkisstj. aukist á föstu verðlagi úr 11 milljörðum í 17.5 milljarða kr. eða um 59%. Þessi stefna er rányrkjustefna.

Fyrir þremur árum varaði Alþfl. þjóðina við hvað gerast mundi ef slíkri stefnu yrði áfram fylgt. Nú hefur reynslan dæmt. Skammtímaráðstafanir, eins og þær sem brbl. ríkisstj. eru nýjasta dæmið um, eru haldlausar. Þess vegna er Alþfl. á móti brbl. Í stað þeirra krefjumst við kerfisbreytinga. Við viljum nýja stefnumótun í málefnum atvinnuveganna, svo að verðmætin, sem þjóðin lætur þeim í té, fari að skila sér til hennar aftur í bættum lífskjörum. Við viljum gerbreyta skattakerfinu, setja mörk á erlendar lántökur og gera þjóðarátak til þess að losa okkur út úr feni erlendra óreiðuskulda. Við viljum skipulega valddreifingu á öllum sviðum.

Breytingar af þessu tagi verða ekki fluttar í einu þingmáli. Til þess eru þær allt of víðfeðmar. Við Alþfl.-menn höfum þegar gengið frá umfangsmiklum tillögum okkar í veigamestu atriðum þessarar nýju stefnu og munum á næstunni leggja sérstaki kapp á að kynna þær fyrir almenningi. Við höfum smíðað vopnin. Við höfum trú á þeim. Við förum þess á leit að fá að sýna þá trú okkar í verki.

Góðir hlustendur. Stærsti vandi okkar er samt ekki af efnahagslegum rótum runninn. Íslenska þjóðfélagið er opið og frjálst, en frelsi má ekki misnota. Það gerist nú æ tíðara að einstakir hópar og ráðamenn telja sér ekki lengur skylt að fylgja leikreglum nema þeir sjái sér persónulegan hag í því. Slíkt er ekki frelsi, hæstv. forsrh., það er stjórnleysi. Þannig vinnubrögð, hæstv. ráðh., eru við það miðuð að aðrir axli ábyrgðina að leikslokum. Samskiptareglur okkar þurfa ávallt að vera í endurskoðun og þeim má vissulega breyta, en menn verða að virða þær leikreglur sem þeir sjálfir setja sér. Engin snilld er í því fólgin að brjóta það sem menn ætla öðrum að virða. Snilldin, sem margir halda að felist í því þegar valdsmenn brjóta leikreglur sjálfum sér til framdráttar, kemur á síðari stigum fram sem reikningur til aðdáendanna — reikningur sem menn borga fyrir með rýrnandi lífskjörum. Núv. ríkisstj. var mynduð á þessum grundvelli, ekki til þess að ná tilteknum árangri, heldur annars vegar til að færa ákveðnum einstaklingum upphefð og hins vegar til þess að reka fleyg í einn af flokkum þjóðarinnar.

Sumir hafa dáðst að þeim mönnum sem léku þessa leiki. Nú, hæstv. forsrh., ert þú að afhenda aðdáendum þínum reikninginn.

Góðir áheyrendur. Innan fárra mánaða verða nýjar kosningar. Ég vil hvetja ykkur til að gera ykkur ljóst hvaða afleiðingar það hefur að ýta þá enn frekar undir það los og ábyrgðarleysi sem orðið er þjóðarmein. Slíkur leikur er of dýru verði keyptur til þess að við höfum efni á að láta hann eftir okkur. Ábyrgðina verðum við aftur að leiða til öndvegis. Slíki á að geta orðið sameiginlegt markmið okkar allra, hvaða stjórnmálaskoðun sem við höfum. Slíkt verður að vera takmark okkar og tilgangur að næstu kosningum loknum, á meðan við enn höfum til þess tíma. — Góða nótt.