24.11.1982
Efri deild: 12. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (529)
97. mál, þjóðsöngur Íslendinga
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Megintilgangur þessa frv. er sá, að því sé slegið föstu af Alþingi að „Ó, guð vors lands“ sé þjóðsöngur Íslendinga og eign íslensku þjóðarinnar og í annan stað að vernda hann gegn misnotkun. Hér hafa hjá þrem hv. þm., sem talað hafa, komið fram aths. um að sérstaklega ákvæði 3. og 4. gr. kunni að vera fullströng eða þyrftu nánari athugunar við, sem auðvitað er sjálfsagt.
Ég vænti þess að hv. allshn., sem væntanlega fær málið til meðferðar, kveðji til fundar við sig þá prófessora tvo sem unnu að samningu frv., Gunnar Schram og Gauk Jörundsson, og ennfremur tónskáldið Jón Þórarinsson, og er sjálfsagt að athuga þessi atriði, sem hér hefur verið á minnst, nánar í nefnd.