24.11.1982
Neðri deild: 12. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í B-deild Alþingistíðinda. (542)

16. mál, þingsköp Alþingis

Forseti (Alexander Stefánsson):

Út af ummælum hv. þm. skal það tekið fram að venja hefur verið að hv. þm. óska eftir ákveðinni nefnd. Venjulega hefur verið talið óhætt að fara eftir því. En að sjálfsögðu er þetta rétt ábending og ég mun fyrir mitt leyti sem varaforseti taka hana til athugunar.