24.11.1982
Neðri deild: 12. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (546)
16. mál, þingsköp Alþingis
Baldur Óskarsson:
Herra forseti. Það er náttúrlega alveg makalaust að upp skuli risa hér einn af þm. Sjálfstfl. og fara að dylgja um að einhver fjárhagsleg tengsl séu milli Alþb. og væntanlega einhverra austantjaldsríkja og að Alþb. byggi sín hús og reki sitt blað fyrir peninga sem koma frá útlöndum. Það vita auðvitað allir menn að þetta er svo hlægileg ásökun og svo vitlaus, að það er undarlegt að jafn ágætur maður og hv. síðasti ræðumaður, Halldór Blöndal, skuli taka sér slík orð í munn. Og það er þeim mun merkilegra þegar vitað er að einmitt forustumenn í Sjálfstfl. hafa náið samband við hið útlenda vald og vilja vera í selsköpum ýmsum sem eru kennd ýmist við Bitderberg eða Atlantshafið. Hópar sjálfstæðismanna fara á ári hverju í boðsferðir til Atlantshafsbandalagsins og eru látnir sofa í herskipum til þess að sýna þeim dýrðina og heilaþvo þá. (Gripið fram í: Flugvélamóðurskipum.) Flugvélamóðurskipum? Nei.
Það er mjög ánægjulegt til þess að vita, að Alþb. hefur einmitt opnað brautina fyrir því að stjórnmálaflokkar starfi miklu opnar en áður tíðkaðist. Það sem við t.d. gerum er einfaldlega að birta á ári hverju okkar reikninga. Það geta allir skoðað þá. Við leggjum þá á ári hverju fyrir blaðamenn. Sama er gert með reikninga Þjóðviljans. Auðvitað er þarna ekki neitt að fela. Auðvitað sækjum við okkar fé ekki til annarra en okkar stuðningsmanna og þeirra sem í flokknum eru. Ég vísa því þessum dylgjum til föðurhúsanna.
Auðvitað væri það guðvelkomið jafnt fyrir þingnefnd og fyrir Halldór Blöndal eða hvern sem er að fá að kynna sér nákvæmlega hvernig fjárreiðum Alþb. er háttað. Þar er ekkert að fela og það er sjálfsagt að almenningur fái um það vitneskju hvernig stjórnmálaflokkar eru reknir. Ég teldi að það ættu að vera lög í landinu að þeim væri gert skylt að birta reikninga sína.