29.11.1982
Neðri deild: 13. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 867 í B-deild Alþingistíðinda. (579)
22. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Flm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Frv. það sem ég mæli hér fyrir er samhljóða frv. sem sömu flm. fluttu á síðasta þingi, þeir hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, Vilmundur Gylfason og Guðmundur G. Þórarinsson auk mín. Frv. fjallar um að skattur samkv. fasteignamati á sumarbústaðalóðum og mannvirkjum á þeim lækki í fjórðung úr prósentu frá núgildandi lögum. Lögin eru þess efnis að það sé tekið 1/2% í skatt af sumarbústaðalóðum og mannvirkjum á þeim samkv. fasteignamati, en jafnframt er heimild í gildandi lögum til hækkunar eða lækkunar um 1/4%. Flm. endurflytja þetta frv. nú vegna mjög margra óska frá einstaklingum og félagssamtókum hér í þéttbýlinu um að fá létt á þessari kvöð.
Það er öllum kunnugt um að þéttbýlisbúar hafa í vaxandi mæli lagt upp úr því að þeir hefðu aðstöðu til að dvelja utan þéttbýlissvæðanna í tómstundum og það er ekkert óeðlilegt við að borgarbúar leggi mikið upp úr því að eignast sína eigin lóð í nágrannasveitum okkar og koma upp húsi þar. Ég geri ráð fyrir að það sé ekki aðeins þeim sjálfum til yndisauka, heldur og umhverfinu, því að það er til mikillar fyrirmyndar hvernig þetta fólk hefur ræktað í kringum sín hús og á sinni lóð. Það er hætt að teljast til fríðinda í nútímaþjóðfélagi að geta notið þess. Því sjáum við flm. ekki ástæðu til þess að það sé verið að halda inni í þessum lögum því ákvæði sem bókstaflega, að mati þeirra sem undir þetta ákvæði falla, má kalla okur, hafandi í huga að þessi hús eru aðeins notuð litinn hluta úr hverju sumri, en á þau eru lögð sömu gjöld og um ársíbúð væri að ræða.
Ég tel að slík ákvæði í lögum spilli sambúðinni á milli þéttbýlis- og dreifbýlisbúa og þó ekki væri nema vegna þess sjónarmiðs eigi að lagfæra þetta ákvæði. Ef hv. nefnd, sem fær þetta mál til meðferðar, vill ekki verða við þeirri ósk að mæla með breytingu þeirri sem í frv. felst óska ég eftir að hún taki ákvæði um það inn í þessi lög að fólkið úr þéttbýlinu fái einhverja þjónustu frá viðkomandi sveitarfélögum á móti. Það er eins og dreifbýlisbúarnir sem þarna eru aðilar geri ekki annað en gera kröfur á fólk sem hefur eignast afnotarétt af sumarbústaðalóðum og komið sér upp húsum þar, en séu alls ekki tilbúnir að koma á móti með neina þjónustu.
Ég hafði ekki ætlað mér að efna hér til neinnar alvarlegrar umr. á þessu stigi um þetta. Við teljum það flm., að hér sé um réttlætis- og sanngirnismál að ræða. Ég legg til, herra forseti, að málinu verði vísað til hv. félmn. og 2. umr. að lokinni þessari umr.