02.12.1982
Sameinað þing: 24. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 915 í B-deild Alþingistíðinda. (620)
265. mál, stjórn og starfræksla póst- og símamála
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Það er auðvitað hárrétt hjá hæstv. samgrh. að kerfi Pósts og síma er ekki í stakk búið til að gera öll samtöl á hverju svæði að innanbæjarsamtölum og eru reyndar varla rök til þess. Það eru engin rök til þess að hafa samtöl t.d. frá Hveragerði að Kirkjubæjarklaustri jafndýr og samtöl innan staðarins Hveragerðis. Það sem keppa ber að er að draga stórlega úr hinum mikla kostnaðarmun á langlínusamtölum og innanbæjarsamtölum. M.ö.o. að lengja stórlega öll skref á öllum svæðum, öllum leiðum, og þá auðvitað á kostnað innanbæjarsamtala. Öðruvísi fæst það ekki uppi borið. Það eru engin rök fyrir því lengur að hafa þennan mikla mismun á langlínusamtölum og innanbæjarsamtölum, vegna þess að flutningur símtala á milli staða verður alltaf ódýrari og ódýrari, ódýrari og ódýrari tæki, fleiri og fleiri samtöl sem við flytjum, en innanbæjarstöðvarnar og innanbæjarkerfin halda sínum kostnaði óbreyttum. Ég gæti ímyndað mér að samtal norður á Akureyri frá Reykjavík kostaði svona þrisvar sinnum meira en innanbæjar í Reykjavík, þrisvar, fjórum sinnum kannske fimm sinnum meira í reynd, en kostar líklega 100 sinnum meira þegar við förum að borga það. Það hafa verið rekin upp ramakvein hér á Alþingi þegar lítil skref hafa verið tekin í þessa átt, en það þarf að mínu mati að taka miklu stærri skref. Ég tek mjög undir það með hæstv. ráðh. að halda þarf áfram að jafna kostnaðinn milli dreifbýlis og þéttbýlis og í stærri skrefum en hingað til hefur verið gert.