06.12.1982
Efri deild: 14. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (667)
104. mál, Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Flm. (Egill Jónsson):
Herra forseti. Það var út af fyrir sig ánægjulegt að hæstv. landbrh. skyldi gefa sér tíma til að hlýða á mitt mál. En hins vegar ætla ég, herra forseti, ekki að halda áfram þessari umr. úr stólnum nema ráðh. verði viðstaddur. Ég treysti mér ekki til að fara að gera aths. við hans mál ef hann má ekki vera að því að hlýða á þær. (Forseti: Ég hafði óskað eftir því við hæstv. ráðh. að hann yrði viðstaddur þessa umr., en hann kvaðst nauðsynlega þurfa að fara á fund hér niðri, sem fyrir löngu hefði verið boðaður, og úr því svo er verður varla á annað kosið í þessu tilfelli en að fresta um stund þessu máli.) Já herra forseti. Ég legg það mjög ákveðið til. Það er í tvennum tilgangi gert: Bæði vildi ég gjarnan gera aths. við mál hæstv. ráðh. og auk þess finnst mér gagnlegt að bændurnir í þessu landi geti fengið nokkra vísbendingu um hvernig þessi hæstv. ráðh. ver tíma sínum og hvort hann má vera að því að fylgjast með umr. um landbúnaðarmál á Alþingi.