07.12.1982
Sameinað þing: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (720)

269. mál, verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og endurskoðun útflutningsbótakerfisins

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Mig langaði aðeins að koma á framfæri þakklæti til hv. 11. þm. Reykv. fyrir að leggja fram þessa fsp. til hæstv. landbrh. Það hefur verið afar fróðlegt að skyggnast aðeins inn fyrir dyrnar á stjórnarheimilinu og kynnast því hvernig málum er þar háttað.