08.12.1982
Neðri deild: 15. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1042 í B-deild Alþingistíðinda. (777)

Fundarsókn þingmanna

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Það er ekki nóg með að hér sé með fádæmum illa og óstundvíslega mætt, heldur má maður vart heyra til sjálfs sín fyrir skrafi, ysi og þysi og rausi í þessari deild. (ÓE: Það þýðir nú ekki að vera að skamma okkur fyrir það.) Skamma hv. þingdeild? Flestir og þar á meðal formaður þingflokks Sjálfstfl. komu langtum of seint til fundar. (ÓE: Nokkuð fleira sem forsetinn vill segja?) Já, það mun verða gert í bréfi til þingflokksformanna, þannig að breytt verði út af þessum ósið sem hér viðgengst.