13.12.1982
Neðri deild: 16. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1103 í B-deild Alþingistíðinda. (822)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Alexander Stefánsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 10. des. 1982.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson lektor, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Guðmundur G. Þórarinsson,

12. þm. Reykv.

Haraldur Ólafsson hefur áður átt sæti á Alþingi og þarf því eigi að athuga kjörbréf hans. Ég býð hann velkominn til starfa.