15.12.1982
Sameinað þing: 30. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1172 í B-deild Alþingistíðinda. (878)

1. mál, fjárlög 1983

Eggert Haukdal:

Herra forseti. Þó vert væri að svara þessari gatslitnu plötu hv. þm. Vilmundar Gylfasonar, þá nenni ég ekki að gera það. En ég vil vekja athygli á, úr því að hér eru greidd atkv. með nafnakalli, að ríkisstjórnir hafa árum saman skert mjög framlög Byggðasjóðs frá því sem þau eiga að vera lögum samkvæmt. Og enn hefur verið vegið stórlega í sama knérunn hjá þessari ríkisstj. En þrátt fyrir það segi ég já.