15.12.1982
Neðri deild: 18. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1177 í B-deild Alþingistíðinda. (891)

103. mál, meðferð opinberra mála

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Frv. það sem hér liggur fyrir fjallar um breytingu á lögum um meðferð opinberra mála, á þeim ákvæðum laganna er varða sektarheimild lögreglumanna og lögreglustjóra. Það er komið óbreytt frá Ed. Þessar sektarheimildir eru nú bundnar við 300 kr. að því er varðar lögreglumenn, 3 000 kr. að því er varðar lögreglustjóra. Þá er heimild lögreglustjóra til að ákveða eignaupptöku bundin við 1 000 kr. verðmæti. Þessar fjárhæðir eru bundnar við tiltekna málaflokka, þ.e. brot á umferðarlögum, áfengislögum, lögum um tilkynningar aðseturskipta og lögreglusamþykktum. Lætur ríkissaksóknari lögreglustjórum í té skrá yfir þau brot sem sektarheimildin nær til, og eru í þeirri skrá leiðbeiningar um sektarupphæð fyrir hverja tegund brota. Vegna verðlagsþróunar undanfarin ár er nauðsynlegt að hækka fjárhæðir þær sem í lögum standa.

Sú skipan að afgreiða mál með lögreglusekt hefur gefið góða raun og léttir verulega starfi af dómstólum. Með frv. þessu er lagt til að sektaheimild lögreglumanna hækki í 1 200 kr. og sektaheimild lögreglustjóra í 12 000 kr. Jafnframt hækki verðmæti þess sem lögreglustjóri hefur heimild til að ákveða eignaupptöku samhliða sektarákvæðum í 4 000 kr.

Eins og áður segir hafa sektargerðir þessar reynst vel og létt verulegu starfi af dómstólum. Hins vegar er svo um hnúta búið að máli verður ekki lokið með þessari aðferð nema aðili samþykki. Ef hann samþykkir ekki þessa málsmeðferð verður máli vísað til meðferðar dómstóla.

Herra forseti. Ég hef rakið meginefni frv. þessa. Ég vil mælast til þess að frv. geti hlotið afgreiðslu fyrir jól, en þannig stendur á að eigi mun nú unnt að endurskoða þær leiðbeiningar sem ríkissaksóknari gefur út, þar sem eðlileg endurskoðun fjárhæðanna mundi fara upp fyrir þau takmörk sem lögin setja í dag. Hins vegar er nauðsynlegt að sektarfjárhæðir þessar verði hækkaðar og þær séu jafnan í samræmi við verðlag á hverjum tíma.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.