16.12.1982
Neðri deild: 20. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1232 í B-deild Alþingistíðinda. (958)

56. mál, fjörutíu stunda vinnuvika

Frsm. meiri hl. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. meiri hl. félmn. um frv. til l. um breyt. á lögum um 40 stunda vinnuviku. Nefndin hefur haft frv. til umfjöllunar, en um er að ræða fylgifrv. með frv. um lengingu orlofs, 55. mál þingsins. Leggur meiri hl. n. til að frv. verði samþykkt óbreytt.