25.11.1983
Neðri deild: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (1007)

23. mál, afnám laga um álag á ferðagjaldeyri

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um afnám laga nr. 81 frá 23. des. 1980 um álag á ferðagjaldeyri. Frv. þetta hefur þegar farið í gegnum fyrri deild, þ.e. Ed., og hlotið þar afgreiðslu. Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka þá ræðu sem ég flutti þar en vona að þessi hv. deild veiti frv. það brautargengi sem það fékk — eða hliðstætt því sem það fékk í Ed.