25.11.1983
Neðri deild: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (1010)

27. mál, niðurfelling stimpilgjalda af íbúðalánum

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég legg hér fram frv. til l. um heimild til niðurfellingar eða endurgreiðslu stimpilgjalda af íbúðarlánum. Það er eins með þetta frv. eins og það sem ég mælti fyrir hér á undan. Það var lagt fram í hv. Ed. og hefur hlotið þar afgreiðslu til þessarar hv. deildar og ég tel ekki ástæðu til þess að endurtaka það sem ég sagði þá og skráð er í þingtíðindum, en vona að þessi hv. deild greiði fyrir frv. á sama hátt og Ed. hefur gert.