25.11.1983
Neðri deild: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (1012)

49. mál, tollskrá o.fl.

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég legg hér fram frv. til l. um breytingu á lögum nr. 98 frá 31. des. 1982 um breytingu á lögum nr. 120 31. des. 1976, um tollskrá o. fl. með áorðnum breytingum. Þetta frv. hefur einnig eins og hin tvö fyrrnefndu frv. sem ég hef mælt fyrir í dag verið lagt fram í Ed. og hefur hlotið þar afgreiðslu og er nú til 1. umr. hér í þessari hv. deild. Ég leyfi mér að vona að þessi hv. deild greiði götu frv. á sama hátt og Ed. hefur þegar gert.