29.11.1983
Sameinað þing: 26. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í B-deild Alþingistíðinda. (1079)

398. mál, Áburðarverksmiðja ríkisins

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég get nú eiginlega ekki orða bundist yfir þeim upplýsingum sem hér hafa komið fram. Mér virðist að hérna hafi verið upplýst alveg dæmalaust kæruleysi yfirvalda, hver sem þau eru, varðandi mengunarmál þessarar verksmiðju. Verksmiðjan heldur áfram starfsleyfislaus og samkvæmt þeim upplýsingum sem þarna koma fram hafa heilbrigðisyfirvöld árum saman ekki sinnt óskum um starfsleyfi. Ég held að það væri virkilega þess virði að kanna þarna betur hver veldur og hver heldur.