05.12.1983
Neðri deild: 20. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1348 í B-deild Alþingistíðinda. (1179)

26. mál, fjármálaráðstafanir til verndar lífskjörum

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um staðfestingu á brbl. um fjármálaráðstafanir til verndar lífskjörum, sem sett voru í tengslum við efnahagsráðstafanir ríkisstj. hinn 27. maí s.l. Frv. þetta var lagt fram í Ed. og hefur fengið eðlilega meðferð þar og er nú hér í hv. Nd. til 1. umr.

Brbl. þessi voru sett til að milda áhrif efnahagsaðgerða stjórnarinnar og hinna lakar settu í þjóðfétaginu. Í þeim er að finna ívilnandi ákvæði til hagsbóta fyrir barnafólk og lífeyrisþega, auk þess sem persónuafsláttur til skatts er hækkaður.

Í 1. gr. frv. koma fram ákvæði um hækkun persónuafsláttar og barnabóta. Hækkun persónuafsláttar samsvarar tekjuskattslækkun að fjárhæð 135 millj. kr. og hækkun barnabóta nam 90 millj. kr.

Í 2. gr. frv. er kveðið á um hækkun lífeyristrygginga og 100% hækkun mæðralauna með einu barni og 30% með tveimur börnum og fleiri. Ákvæði þessarar greinar leiddu til 30 millj. kr. útgjalda fyrir ríkissjóð, en í greininni er gert ráð fyrir að ýmsar lífeyrisgreiðslur hækki um 5% umfram þær launahækkanir sem urðu 1. júní s.l.

Í 3. gr. er ríkisstj. veitt heimild til stóraukinna fjárveitinga til jöfnunar og lækkunar hitunarkostnaðar íbúðarhúsnæðis. Er í þessu skyni heimilað að verja allt að 150 millj. kr., en á fjárlögum þessa árs var fjárveiting til þessa þáttar 35 millj. kr. Hér er því um verulega hækkun að ræða. Í fjárlagafrv. fyrir 1984 er raunar gert ráð fyrir enn frekari hækkun fjárveitinga til að jafna og lækka hitunarkostnað, 230 millj. kr.

Í 4. gr. er fjmrh. heimilað að lækka ríkisútgjöld í ár um allt að 300 millj. kr. frá fjárlögum.

Ástæðulaust er að hafa um þetta frv. mörg fleiri orð. Það sem í því felst var mjög mikilvægur liður í þeirri viðleitni ríkisstj. að milda áhrif af þeim óhjákvæmilegu ráðstöfunum sem gripið var til í maí og verja þar með hag hinna verst settu. Þau brbl. sem þetta frv. tengist verða að skoðast sem einn hluti þeirra heildarráðstafana sem gripið var til á s.l. vori og sem gerð hefur verið rækileg grein fyrir í stefnuræðu forsrh.

Ég vil að svo mæltu, virðulegi forseti, leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar.