06.12.1983
Sameinað þing: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (1210)

58. mál, eggjaeinkasala

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Vegna síðari fsp. hv. 5. landsk. þm. sem mér láðist að svara þegar ég talaði áðan liggur það ljóst fyrir að svar við henni er jákvætt því að ég mun að sjálfsögðu beita mér fyrir því að málefnasamningur ríkisstj. nái fram að ganga á sem flestum sviðum.