06.12.1983
Sameinað þing: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1394 í B-deild Alþingistíðinda. (1229)
116. mál, krabbameinslækningar
Stefán Benediktsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir greinargóðan og upplýsandi málflutning. Það að ég fer hér í ræðustól er vegna þess að ég hef, kannske meira og minna óvart, fylgst með þessu máli undanfarin ár vegna starfa minna á öðrum vettvangi og hef fylgst með ákveðnum þætti þess af allmiklum áhuga vegna þess að sú stofnun sem staðið hefur að vinnu þessa verkefnis, þ.e. húsameistaraembætti ríkisins, hefur verið ákveðinn þyrnir í mínum augum.
Ég held að ef maður skoðar hönnunarsögu þessarar byggingar geti maður staðið frammi fyrir dálítið undarlegri spurningu, sem sé spurningu um gagnkvæma ábyrgð ráðuneyta. Húsameistaraembætti ríkisins heyrir undir forsrn. og ef segja á í stuttu máli hvernig það hefur staðið að þessu verki þá held ég að ég taki ekki of stórt upp í mig með því að segja að það hefur gert það mjög illa. staðreynd er að auðvitað hefur Alþingi ekki enn tekið afgerandi afstöðu til þessarar byggingar. En staðreynd er einnig að byggingin hefur heldur ekki í raun og veru átt rétt á því, þ.e. að tekin væri afstaða til hönnunar hennar, vegna þess að það er ekki fyrr en nú undir það allra síðasta að byggingin var komin í það horf að raunverulega væri hægt að standa að þeirri framkvæmd. Og þar sem við annan enda borðsins situr heilbr.- og trmrh. en við hinn enda borðsins sá sem kalla mætti seljanda umræddrar þjónustu, forsrh., þá álít ég að hér geti að mínu mati hreint og beint verið um gagnkvæma ábyrgð að ræða. Ber forsrn. ekki ábyrgð á þeim töfum sem orðið hafa á þessari framkvæmd? Tilfellið er að þó að Alþingi hefði veitt fé til byggingarinnar, þá var ekki hægt að byrja framkvæmd hennar. Það varð að taka upp hönnunarvinnuna, a.m.k. einu sinni ef ekki í tvígang, gjörsamlega frá grunni vegna þess að svo slælega hafði verið staðið að henni. Þetta tel ég með öðrum fordæmum — (Forseti hringir.) Herra forseti, ég lýk máli mínu nú. Þetta tel ég með öðrum fordæmum næga ástæðu til að gera það að tillögu minni að leggja þetta gjörsamlega óþarfa embætti niður með öllu.