06.12.1983
Sameinað þing: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1422 í B-deild Alþingistíðinda. (1263)
404. mál, átak gegn útbreiðslu ávana- og fíkniefna
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Ég veit náttúrlega ekki hvað það er mikið sem hv. fyrirspyrjandi hefur heyrt af því sem ég sagði. En í því máli var einmitt lögð áhersla á að vel þyrfti að huga að þessum málum um allt land þar sem að augljóst væri að leitað verður á þá staði þar sem gæsla er minni, ef hún er aukin á öðrum stöðum. En með þessari skipulagningu sem ég ræddi um held ég að komið hafi fram í þessu máli þó ég undirstriki það betur að það er samstarf þeirra aðila sem að þessu vinna um allt land, það er þjálfun lögreglumanna, að þeir komi til fíkniefnalögreglunnar hér í Reykjavík og verði þar nokkurn tíma til að kynnast þeim vinnubrögðum. Eins og fram kom í þessu máli í nokkrum mæli koma menn úr hinni almennu lögreglu til fíkniefnalögreglunnar og kynnast þar þessum málum mjög vel, en fara síðan aftur út í hina almennu löggæslu. Og ég vildi leggja áherslu á að þetta gerist þannig á landinu öllu og þannig fæst virkt lið um allt land. Síðan sé haft reglubundið samstarf þarna á milli.
Í því sem ég las upp áðan var bent á að mánaðarlega þyrfti að skrá þau mál sem upp kæmust og helst að setja þau inn í tölvu til að sem gleggst yfirlit gæti orðið yfir það hvernig staðan er og hvernig hægt væri að nýta þá reynslu og upplýsingar sem einhvers staðar kæmu fram að gagni fyrir alla. Þarna er um samstarf og skipulagsbreytingu að ræða. Dómsmrn. beitti sér fyrir því að þarna yrði um nánara samstarf að ræða á milli þessara aðila. Ég taldi að út af fyrir sig mundi kannske ekki þurfa svo mjög aukið fjármagn, en ef fjölga á liði eða starfsmönnum í þessu þýðir það auðvitað fleiri löggæslumenn.
Það kom einnig fram í þessu að hafa þyrfti nánara samstarf við tollgæsluna sem ekki heyrir undir dómsmrn. og ég veit að ekki stendur á fjmrh. að slíkt samstarf geti komist á. Afla þarf ýmissa tækja sem nú eru notuð erlendis til að auðvelda þetta eftirlitsstarf.
Þá vil ég að lokum geta þess að dómsmrn. og starfsmenn þess hafa verið í allnánu samstarfi, sérstaklega við Norðurlöndin í þessum málum. Fyrir tveimur árum var á vegum Norðurlandaráðs skipaður hópur sem vinna skyldi að ákveðnu takmarki — að fíknaefnalausum Norðurlöndum. Þessi hópur er búinn að skila skýrslu með ýmsum gagnlegum ábendingum. Dómsmrh. Noregs bauðst til þess nýlega að haldinn yrði sérstakur fundur dómsmrh. Norðurlanda í Osló í febr. til að ræða niðurstöður þessarar skýrslu þannig að menn reyndu að átta sig á því hvernig hægt væri að hagnýta sér þær upplýsingar sem þar koma fram. Ekki er nokkur vafi að ómetanlegt er fyrir okkur, að læra af reynslu Norðurlandanna sem urðu fyrr og ennþá verr fyrir barðinu á þessum vágesti og jafnframt að fá stuðning frá þeim á annan hátt sem þeir eru mjög reiðubúnir að veita. Það er álit og reynsla allra að það þarf að hafa samstarf milli landa. Þannig að verið er að vinna að þessu á mörgum sviðum.
En það sem ég var að ljúka við að segja þegar minn tími var þrotinn í fyrra skiptið var að vitanlega er nauðsynlegt að halda uppi strangri löggæslu til varnar slíkum vágesti. En vitanlega er viðhorf almenningsins lang sterkasta vörnin, þ.e. að skapa það viðhorf að neysla þessara efna sé algjör fjarstæða hvernig sem á það mál er litið og jafnframt að taka undir það sem hv. 2. þm. Austurl. sagði að ekki er hægt að gera upp á milli vímugjafanna. Afleiðingarnar eru það sem mestu máli skiptir og þær eru því miður oft hinar sömu. Í þessu viðfali sem ég var að lesa örfáar setningar upp úr áðan segir Þórarinn Tyrfingsson:
„Stærsta vandamálið er hið sama, hvað báða þessa hópa snertir, þ.e. alkóhólista og aðra sem annarra vímuefna neyta, að þeir eru að leita í sama vímugjafa eftir að þeir hafa jafnað sig. Það er því ósköp svipað sem þessir tveir hópar þurfa að glíma við að meðferð lokinni, að halda sig frá efnunum og hefja nýtt líf án þeirra. Og það er þetta sem þarf að öðlast almenna viðurkenningu, nægilega sterka, að vímuefna er fjarstæða að neyta.“
Vitanlega er sjálfsagt að undirstrika það með þau efni, sem hér hafa verið til umr., en glíman verður erfið nema það nái til allra þátta þessa máls.