06.12.1983
Sameinað þing: 29. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)

112. mál, nýting ríkisjarða í þágu aldraðra

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Mig langaði aðeins til að lýsa stuðningi mínum við þessa till. Hér er hugsað á svolítið nýstárlegan hátt um lausn á hlutum sem oft eru vandamál. Og svo sannarlega gætir manneskjulegra sjónarmiða í þeim hugmyndum sem hér eru settar fram. Ég styð því eindregið að fram fari könnun á þeim möguleikum sem hér er bent á.