12.12.1983
Neðri deild: 24. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1652 í B-deild Alþingistíðinda. (1437)
142. mál, almannatryggingar
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Þetta frv. er um breytingar á lögum um almannatryggingar ásamt síðari breytingum, eða hið svokallaða sjúkratryggingagjald. Í frv. til fjárlaga fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að á því ári verði lagt á sjúkratryggingagjald með sama hætti og gert var á grundvelli þeirra laga sem eru í gildi á þessu ári. Af þessum sökum er þetta frv. hér lagt fram. Það er efnislega samhljóða gildandi lögum.
Álagt sjúkratryggingagjald á árinu 1983 nam 85.8 millj. kr. og er áætlað að af þeirri fjárhæð muni innheimtast um 80 millj. samkv. þessu frv. áætlar fjmrn. að álagning gjaldsins muni nema um 132 millj. kr. og að innheimt fjárhæð þess muni verða um 120 millj.
Gengið er út frá því að tekjuskattar til ríkissjóðs, þ.e. sjúkratryggingagjald samkv. þessu frv. og tekjuskattur samkv. lögum þar um, verði samanlagt óbreytt hlutfall af tekjum gjaldenda á milli greiðsluáranna 1983 og 1984. Þetta hlutfall í sjúkratryggingagjaldinu hefur hækkað lítið eitt en sú hækkun er hins vegar bætt upp með tilsvarandi lækkun tekjuskatts samkv. frv. til l. um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt. Þegar á heildina er litið er sjúkratryggingagjaldið og tekju- og eignarskatturinn því í samræmi á milli þessara tveggja ára.
Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessar umr. verði málinu vísað til hv. fjh.- og viðskn. Hins vegar hef ég ekki á móti því ef till. kemur um heilbr.- og trn., en tel eðlilegra að málið sé í höndum fjh.- og viðskn. af því að skattamálin eru þar til umfjöllunar.