16.12.1983
Neðri deild: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1930 í B-deild Alþingistíðinda. (1654)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Forseti (Ingvar Gíslason):

Út af þessari ábendingu hv. þm. tel ég út af fyrir sig að hún geti átt fullan rétt á sér, að menn taki slíkar till. til athugunar. En ég held þó að ekki séu skilyrði til þess nú að við getum stöðvað fundinn á þessari stundu, enda hefur n. ekki haft aðstöðu til að ræða hvort hún er fús til þess að taka málið þannig fyrir. Við höldum því áfram að ræða málið um sinn.