16.12.1983
Neðri deild: 30. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1963 í B-deild Alþingistíðinda. (1695)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég vil taka fram vegna umr. sem hafa orðið um þingsköp, að ég tel að það hafi verið staðið eðlilega að framkvæmd funda, bæði hér í deildinni í dag og einnig hvað varðar fund í sjútvn. Hér hefur verið gert hlé samkv. sérstakri ósk og samkv. því sem formaður nefndarinnar hefur tekið undir til að halda slíkan fund í sjútvn., og ég sé ekki annað en að þar hafi að öllu verið fullnægt formsskilyrðum.