16.12.1983
Neðri deild: 30. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2010 í B-deild Alþingistíðinda. (1707)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Forseti (Ingvar Gíslason):

Forseti vill nú bera af sér þá sök að hann hafi ekki gert tilraun til að hafa góða samvinnu við þingið um meðferð þessa máls. Og á þessari stundu fullyrði ég að forseti hafi aldrei verið jafnfús til samvinnu við þingið eins og einmitt nú.