17.12.1983
Efri deild: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2048 í B-deild Alþingistíðinda. (1733)

161. mál, málefni aldraðra

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir vinsamlegar undirtektir við þetta frv. Mér láðist áðan að lýsa því hér yfir að ég hef ákveðið að fela sérstakri nefnd að endurskoða þessi lög í byrjun næsta árs. Það er ýmislegt í sambandi við þau sem þarfnast endurskoðunar. Ég vildi að það kæmi hér fram svo að hv. þdm. vissu um þá fyrirætlan.