17.12.1983
Efri deild: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2048 í B-deild Alþingistíðinda. (1735)

161. mál, málefni aldraðra

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég vil að það komi fram við þessa umr., að enda þótt þetta mál hafi ekki verið á þeim lista sem fram var lagður upphaflega, þegar verið var að semja um framgang mála hér í þinginu síðustu daga fyrir jólahlé þingsins, munum við Alþfl.-menn greiða fyrir því að þetta mál geti náð fram að ganga með eðlilegum hætti.