17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2059 í B-deild Alþingistíðinda. (1767)

Um þingsköp

Forseti (Ingvar Gíslason):

Forseti fól skrifstofu Alþingis að boða alla með símhringingu og ég hef ekki ástæðu til þess að ætla annað en það hafi verið framkvæmt. Ég hef ekkert annað fyrir mér í því en svo hafi verið. (Gripið fram í: Er ekki hægt að ganga úr skugga um það?) Það er hægt að ganga úr skugga um það.