17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2061 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Guðmundur H. Garðarsson:

Herra forseti. Ég vil áður en kemur til afgreiðslu og atkv. um þessa brtt. og svo væntanlega það frv. sem hér er til meðferðar óska eftir að forseti geri glögga grein fyrir því hver er málsmeðferð áður en atkvgr. fer fram. Ég held að öllum hv. þm. sé ekki alveg ljóst hvernig hæstv. forseti er að afgreiða þetta mál. (Forseti: Ég held að hæstv. forseti viti fullkomlega hvað hann er að gera í þessu.)