19.12.1983
Neðri deild: 33. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2145 í B-deild Alþingistíðinda. (1837)
147. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Frv. til l. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði kemur frá Ed. þar sem það hefur hlotið afgreiðslu. Ég vona að hv. Nd. sjái sér fært að afgreiða frv. á sama hátt og Ed. og legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.