19.12.1983
Neðri deild: 33. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2148 í B-deild Alþingistíðinda. (1843)

50. mál, tímabundið vörugjald

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Frv. það sem ég mæli hér fyrir hefur þegar verið afgr. í hv. Ed. og ég vona að það hljóti einnig afgreiðslu í þessari hv. deild. Ég legg til að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr.