19.12.1983
Neðri deild: 33. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2149 í B-deild Alþingistíðinda. (1846)
Um þingsköp
Forseti (Ingvar Gíslason):
Þetta mál hefur verið tekið upp á fundum forseta og formanna þingflokka þar sem forsrh. var viðstaddur. Þar kom í ljós að ekki var samkomulag um að þetta mál yrði tekið á dagskrá og því hefur forseti ekki treyst sér til að gera það nú. En hæstv. forsrh. gæti e.t.v. svarað betur um þetta.