19.12.1983
Neðri deild: 33. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (1852)
Um þingsköp
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það er mikill hugur í mönnum að fá umr. um þetta þjóðnauðsynlega mál, sem menn töldu á s.l. vori. Ég sé enga ástæðu til að taka upp umr. um það nema þá því aðeins að jafnframt, og ég kalla eftir því, komi hér til umr. árangur af starfi samkv. þeirri yfirlýsingu sem gefin var í grg. með frv. sem hér um ræðir og er svohljóðandi:
„Jafnframt munu þingflokkarnir beita sér fyrir sérstökum aðgerðum til þess að jafna félagslega og efnalega aðstöðu manna þar sem mismunar vegna búsetu gætir helst.“
Ef það á að fara að taka upp umr. um þetta svokallaða kosningalagafrv. hér aftur verður eindregið kallað eftir tillögum í ljósi þessarar yfirlýsingar og það er alveg öruggt mál að eigi að fara að ræða þetta mál hér á síðustu dögum verður það ekki gert á nokkrum klukkutímum ef ekki á að fylgja í kjötfarið að standa við gefin fyrirheit og yfirlýsingar um að taka aðra þætti með. Ég held að rétt sé að menn geri sér ljóst að það verður ekki í nokkra klukkutíma sem umr. stendur um þetta mál, heldur í nokkra daga ef það á að fara að taka það upp núna á þessum grundvelli.