19.12.1983
Neðri deild: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2236 í B-deild Alþingistíðinda. (1918)

166. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Fyrst örlítil leiðrétting við leiðréttingu, því að hv. formaður nefndarinnar orðaði það svo að 30. gr. laganna skyldi orðast svo. Það getur ekki átt að vera, heldur að eftirtaldar breytingar verði á 30. gr. laganna.

Annars var erindi mitt hingað að gera grein fyrir fyrirvara. Nm. voru sammála um þetta, en nokkrir þeirra undirrita nál. með fyrirvara. Sá fyrirvari varðar almenna skattlagningu í landinu, þá skattlagningu sem í tekjuskattsfrv. í heild er falin en ekki beinlínis þá liði sem hér um ræðir sérstaklega.