20.12.1983
Sameinað þing: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2256 í B-deild Alþingistíðinda. (1984)

Þingfrestun

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Þessi fundur er síðasti fundur Alþingis fyrir þinghlé vegna jólanna. Um leið og ég vil þakka alþm. og starfsfólki Alþingis gott og ánægjulegt samstarf á því ári sem nú er að líða óska ég þeim og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Ég vona að við hittumst öll hell á nýju ári þegar Alþingi kemur saman.